
Stangarpúði – Svartur – Hip-thrust & Squat-pad
4.990 kr.
Nylon-klæddur Foam-stangarpúði sérsniðinn fyrir hip-thrust og hnébeygjurnar. Nokkuð sem allir „glút-builderar“ og „legday-loverar“ ættu að eiga. Púðinn er þykkur og góður, 45cm langur 9,5cm í þvermál og nær utan um flestar stangir ásamt sverleika ólympískra lyftingarstanga.
3 á lager
Púðinn er tilvalinn til að verja herðasvæði í hnébeygju, ásamt því að vera sérstaklega góður fyrir mjaðmalyftur með stöng. Einnig má nota hann til að slá frá sér í gymminu þegar aðdáendurnir verða of ágengir eða einhver ryðst inn í „svæðið þitt“. Fyrir þá sem aldrei fara í gymmið mætti nota þennan púða á ræstingamoppuna sem myndi líta frábærlega út, án þess að þetta breytti nokkrum sköpuðum hlut í ræstingunum.
Hér er því á ferðinni frábær vara til líkamsræktar, sjálfsvarnar og heimabrúks.